2. fundur
velferðarnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 15. desember 2021 kl. 10:00


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 10:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 10:00
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 10:13
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 10:00
Inga Sæland (IngS) fyrir Guðmund Inga Kristinsson (GIK), kl. 10:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 10:00
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) fyrir (HHH), kl. 10:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 10:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:00

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Inga Sæland og gestir nefndarinnar tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

2) 149. mál - dýralyf Kl. 10:00
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með fresti til 10. janúar 2022. Þá samþykkti nefndin að Líneik Anna Sævarsdóttir verði framsögumaður málsins.

3) Kynning á starfsemi og fjármögnun Landspítala Kl. 10:05
Á fund nefndarinnar mættu Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Gunnar Ágúst Beinteinsson og Ólafur Darri Andrason frá Landspítalanum. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:55
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 11:00