24. fundur
velferðarnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 28. mars 2022
kl. 09:30
Mætt:
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 09:30Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 09:30
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:30
Lenya Rún Taha Karim (LenK) fyrir Halldóru Mogensen (HallM), kl. 09:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir (JSkúl), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Guðrún Hafsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:25.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.
2) 450. mál - rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Ásthildur Knútsdóttir, Guðlín Steinsdóttir og Kristín Ninja Guðmundsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 272. mál - stéttarfélög og vinnudeilur Kl. 10:30
Tillaga um að afgreiða málið til 2. umræðu var samþykkt af öllum nefndarmönnum.
Að nefndaráliti meiri hluta standa: ÁsFrið, GIK, GHaf, HHH, JSkúl, LínS, OH og ÓBK (með fyrirvara).
4) Önnur mál Kl. 10:40
Formaður lagði fram bókun um að nefndinni hefði borist minnisblað heilbrigðisráðuneytisins um stöðu biðlista eftir liðskiptaaðgerðum, 24. mars 2022.
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fundi slitið kl. 10:40