37. fundur
velferðarnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 22. maí 2017
kl. 12:35
Mættir:
Nichole Leigh Mosty (NicM) formaður, kl. 12:35Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 1. varaformaður, kl. 12:35
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 12:42
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 12:35
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 12:35
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 12:35
Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE), kl. 12:35
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 12:35
Jóna Sólveig Elínardóttir og Birgir Ármannsson viku af fundi kl. 13:04 vegna annarra þingstarfa. Elsa Lára Arnardóttir vék af fundi kl. 13:12 vegna annarra þingstarfa.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) 438. mál - þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir Kl. 12:35
Á fund nefndarinnar mættu Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra og Elín Sigurgeirsdóttir, Rún Knútsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir frá velferðarráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
2) Önnur mál Kl. 13:15
Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 13:15