27. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 21. janúar 2019 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:40
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:45

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.

2) 5. mál - aðgerðaáætlun í húsnæðismálum Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Hermann Jónasson og Rut Knútsdóttir frá Íbúðalánasjóði og Björn Karlsson og Jón Guðmundsson frá Mannvirkjastofnun. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá mættu á fund nefndarinnar Ásdís Kristjánsdóttir og Tryggvi Másson frá Samtökum atvinnulífsins og Friðrik Ágúst Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Á fund nefndarinnar mætti einnig Magnús Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50