Samantekt um þingmál

Sveitarstjórnarlög

204. mál á 141. löggjafarþingi.
Þór Saari.

Markmið

Að fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa sé í samræmi við það sem þekkist í nágrannalöndunum og að auka íbúalýðræði.

Helstu breytingar og nýjungar

Tillaga er gerð um lágmarksfjölda fulltrúa í sveitarstjórn og er sá fjöldi nokkuð meiri en í núgildandi lögum. Bein aðkoma íbúa að málum sveitarfélaga er tryggð með möguleikum á almennum atkvæðagreiðslum (íbúakosningum). Lagt er til að tillaga borgarafundar, um að almenn atkvæðagreiðsla skuli fara fram um tiltekið málefni, sé bindandi fyrir sveitarstjórn.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lagðar eru til breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Umsagnir (helstu atriði)

Í umsögnum kom meðal annars fram að ekki væri nægileg reynsla komin á sveitarstjórnarlögin frá 2011 til að réttlæta þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu og að ekki væri þörf á fjölgun fulltrúa í sveitarstjórn.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.