Opinber innkaup
288. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Markmið
Að auka skilvirkni í meðferð kærumála vegna gerðar opinberra samninga.
Helstu breytingar og nýjungar
Réttarvarsla á sviði opinberra innkaupa er og verður í höndum sjálfstæðrar stjórnsýslunefndar, kærunefndar útboðsmála, og ný úrræði sem mælt er fyrir um, þ.e. óvirkni og önnur viðurlög, verða það einnig. Óvirkni er nýtt réttarúrræði sem svarar að verulegu leyti til þess að samningur sé felldur úr gildi.
Aðkoma almennra dómstóla að úrskurðum og áherslubreyting við réttarvörslu verður skýrari en áður.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög nr. 84/2007, um opinber innkaup.
- Endurflutt: Opinber innkaup, 685. mál (fjármálaráðherra) á 140. þingi (29.03.2012)
Kostnaður og tekjur
Hefur líklega ekki áhrif á fjárhag ríkisjóðs.
Umsagnir (helstu atriði)
Umsagnir eru mjög jákvæðar en fram komu gagnlegar ábendingar og minniháttar athugasemdir.Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.Aðrar upplýsingar
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/66/EB er varðar aukna skilvirkni í meðferð kærumála vegna gerðar opinberra samninga.
Kærunefnd útboðsmála. Úrskurðir og álit.