Samantekt um þingmál

Greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi

456. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að breyta álagningarhlutföllum eftirlitsgjalds á fjármálastofnanir.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir breytingum á flestum álagningarhlutföllum, fastagjöldum og eftirlitsgjöldum. Hlutfallstölur gjalda lánastofnana lækka en hækka hjá vátryggingafélögum, lífeyrissjóðum o.fl., þ. á m. Íbúðalánasjóði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Gerð er  athugasemd við að ekki hafi dregið úr umsvifum Fjármálaeftirlitsins og að gjöld hafi þar með lækkað.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Fjárlagaskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytis gerir veigamiklar athugasemdir varðandi útreikninga og fjárþörf Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið.


Síðast breytt 27.12.2012. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.