Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda

469. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að skýra og breyta ýmsum ákvæðum í núgildandi lögum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lífeyrissjóðum verði veitt heimild til þess að skilyrða greiðslu örorkulífeyris við að sjóðfélagi fari í endurhæfingu og að framlag lífeyrissjóða vegna þess verði ekki núvirt við tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðanna fyrir árin 2016 og 2017.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir eru jákvæðar en Öryrkjabandalagið gerir nokkrar athugasemdir sem snúa meðal annars að skilyrðum fyrir greiðslu örorkulífeyris, mats á örorku og meðferð mála.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Lög nr. 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður.


Síðast breytt 18.09.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.