Samantekt um þingmál

Endurskoðendur

503. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að betrumbæta núgildandi lög og innleiða ESB-ákvarðanir.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að prófnefnd endurskoðenda færist undir ráðuneytið og endurskoðendaráði verði falið að hafa eftirlit með því að endurskoðendur gæti að fyrirmælum laga nr. 64/2006, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá er lagt til að ráðherra geti í tilteknum tilvikum afturkallað starfsleyfi endurskoðunarfyrirtækja og að innleiddar verði tvær ákvarðanir ESB.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur, og vísað er til laga nr. 64/2006, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
  • Endurflutt: Endurskoðendur, 732. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)
  • Skylt mál: Endurskoðendur, 664. mál (efnahags- og viðskiptanefnd) á 141. þingi (08.03.2013)
  • Skylt mál: Endurskoðendur, 373. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 143. þingi (10.03.2014)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Fáar minni háttar efnislegar athugasemdir bárust.

Afgreiðsla

Var ekki afgreitt úr nefnd. Efnahags- og viðskiptanefnd lagði fram frumvarp, 664. mál, þar sem lagðar voru til breytingar til að innleiða EES-reglur. Frumvarp nefndarinnar var samþykkt.

Aðrar upplýsingar

Innleiða á ákvarðanir framkvæmdastjórnar ESB nr. 2010/485/EB, um bætta samvinnu við Ástralíu og Bandaríkin hvað varðar eftirlit með endurskoðendum, og nr. 2011/ 30/EB, um að gera opinber eftirlitskerfi aðildarríkjanna á þessu sviði jafngild kerfum nokkurra tiltekinna ríkja.


Síðast breytt 29.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.