Lífsýnasöfn
685. mál á 141. löggjafarþingi.
Velferðarráðherra.
Markmið
Að gera heildstæða löggjöf um lífsýnasöfn og safn heilbrigðisupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.Helstu breytingar og nýjungar
Heimilt verði að setja á fót söfn heilbrigðisupplýsinga þar sem gögn sem aflað er til vísindarannsókna eða verða til við rannsóknir yrðu tryggilega varðveitt. Þannig yrði komið í veg fyrir verðmætasóun sem nú á sér stað þegar gögnum sem verða til við rannsóknir er eytt. Einnig er kveðið sérstaklega á um svokallaða leitargrunna. Í þá skulu fara upplýsingar úr sjúkraskrám heilbrigðisstofnana sem nýst geta til að kanna fýsileika vísindarannsókna.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um lífsýnasöfn nr. 110/2000.- Skylt mál: Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, 683. mál (velferðarráðherra) á 141. þingi (14.03.2013)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.Afgreiðsla
Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Lov om videnskabsetisk behandling af sundhedsvidenskabelige forskningsprojekter LOV nr 593 af 14/06/2011.
Noregur
Lov om medisinsk og helsefaglig forskning LOV-2008-06-20-44.
Svíþjóð
Lag (2003:460) om etikprövning av forskning som avser människor.
Lag (2002:297) om biobanker i hälso- och sjukvården m.m.
Finnland
Lag om medicinsk forskning 9.4.1999/488.
Biobankslag (taka gildi 1.9.2013) 30.11.2012/688.