Samantekt um þingmál

Seðlabanki Íslands

20. mál á 142. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að styrkja og efla Seðlabankann.

Helstu breytingar og nýjungar

Helsta breytingin er að það komi skýrt fram að Seðlabankinn skuli stuðla að fjármálastöðugleika. Til þess fær hann auknar heimildir til að setja reglur um laust fé og um lágmark stöðugrar fjármögnunar lánastofnana, um gjaldeyrisjöfnuð og til upplýsingaöflunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnaraðilar höfðu sumir efasemdir um hvernig Seðlabankinn ætlaði að ná þeim markmiðum sem stefnt væri að og eins þótti nokkuð langt gengið í söfnun upplýsinga sem gætu verið persónugreinanlegar.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Seðlabanki Íslands


Síðast breytt 12.09.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.