Samantekt um þingmál

Mannanöfn

200. mál á 143. löggjafarþingi.
Óttarr Proppé.

Markmið

Að rýmka rétt til mannanafngifta.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að mannanafnanefnd verði lögð niður en hlutverk hennar flutt til innanríkisráðherra sem skeri úr álitamálum. Heimilt verði hverjum manni að kenna sig til föður eða móður nema hann kjósi að bera ættarnafn. Heimilt verði að taka upp nýtt ættarnafn.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um mannanöfn nr.  45/1996.

Umsagnir (helstu atriði)

Skiptar skoðanir komu fram í umsögnum. Sumum þótti það ganga of skammt, öðrum of langt. Mannanafnanefnd lýsti sig andvíga frumvarpinu en var reiðubúin til að taka þátt í heildarendurskoðun laga um mannanöfn.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Fjölmiðlaumfjöllun

Skiptar skoðanir um mannanafnanefnd [frétt].  Morgunblaðið 17.1.2014.


Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.