Samantekt um þingmál

Opinber skjalasöfn

246. mál á 143. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að tryggja vörslu og örugga meðferð opinberra skjala með réttindi borgaranna, hag stjórnsýslunnar og varðveislu sögu íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi.

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpinu er ætlað að skýra hver beri ábyrgð á skjalastjórn og skjalavörslu stjórnvalda. Markmiðið er að til verði heildstæðara kerfi en verið hefur um rétt almennings til upplýsinga úr gögnum hins opinbera. Fjallað er um hlutverk Þjóðskjalasafns, héraðsskjalasafna og annarra opinberra skjalasafna. Í frumvarpinu er skýrari upptalning en áður á því hverjir teljist afhendingarskyldir aðilar. Nýmæli er að söfnum er heimilt að taka við skjölum annarra en afhendingarskyldra aðila til varðveislu og eignar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985.
  • Endurflutt: Opinber skjalasöfn, 692. mál (mennta- og menningarmálaráðherra) á 141. þingi (19.03.2013)
  • Skylt mál: Opinber skjalasöfn, 938. mál (menningar- og viðskiptaráðherra) á 154. þingi (05.04.2024)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Ítarlegar umsagnir bárust um frumvarpið. Meðal þess sem var gagnrýnt var að ekki gilti lengur bankaleynd um upplýsingar um viðskiptavini fjármálafyrirtækja í ríkiseigu. Lagt var til að upplýsingum um fjárhags- og einkamálefni einstaklinga verði eytt úr skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila. Hagstofan lagðist gegn niðurfellingu ákvæða laga um að trúnaðargögnum til hagskýrslugerðar skuli eytt að lokinni hagnýtingu þeirra. Ólíkar skoðanir komu fram á því að Alþingi og stofnanir þess væru undanskildar skilaskyldu til Þjóðskjalasafns. Óskað var eftir að Félag um skjalastjórn ætti fulltrúa í stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með nokkrum breytingum. Meðal annars voru gerðar breytingar á 8. og 9. gr. frumvarpsins í nafni skýrleika. Einnig voru gerðar breytingar á 11. gr. frumvarpsins um afhendingarskylda aðila.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Noregur
Lov om arkiv [arkivlova]. LOV-1992-12-04-126.

Danmörk
Bekendtgørelse af arkivloven LBK nr 1035 af 21/08/2007.

Svíþjóð
Arkivlag (1990:782).

Finnland
Arkivlag 23.9.1994/831.



Síðast breytt 20.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.