Lögreglulög
251. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.
Markmið
Í frumvarpinu eru lagðar til skipulagsbreytingar á lögreglunni í landinu. Markmið breytinganna er að efla lögregluna og gera henni kleift að sinna lögbundnum skyldum sínum þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára og fyrirsjáanlegt aðhald í ríkisfjármálum á næstu árum.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að lögregluumdæmi verði 8 í stað 15 og gert ráð fyrir aðskilnaði á embættum lögreglustjóra og sýslumanna. Lagt er til að ráðherra verði heimilt að fela sýslumönnum að fara með daglega lögreglustjórn í umboði lögreglustjóra á tilteknum svæðum með tilliti til sérstakra aðstæðna. Einnig er lagt til að skýrt verði kveðið á um hvaða aðili innan lögreglukerfisins annist bakgrunnsskoðanir og útgáfu öryggisvottana. Gert er ráð fyrir að í samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga sitji lögreglustjóri viðkomandi lögregluumdæmis og sveitarstjórar þeirra sveitarfélaga sem eru í umdæminu eða á því svæði þar sem nefndin starfar.Breytingar á lögum og tengd mál
Lögreglulög nr. 90/1996.
Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
- Endurflutt: Lögreglulög, 173. mál (innanríkisráðherra) á 141. þingi (25.09.2012)
- Endurflutt: Lögreglulög, 739. mál (innanríkisráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)
- Endurflutt: Lögreglulög, 753. mál (innanríkisráðherra) á 139. þingi (14.04.2011)
- Endurflutt: Lögreglulög, 586. mál (dómsmála- og mannréttindaráðherra) á 138. þingi (31.03.2010)
- Skylt mál: Sameining lögregluembætta, 325. mál (BIH) á 133. þingi (07.11.2006)
- Skylt mál: Sparnaður af breytingum á héraðsdómstólum, sýslumannsembættum og lögreglu, 184. mál (GBS) á 138. þingi (11.11.2009)
- Skylt mál: Framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði, 250. mál (innanríkisráðherra) á 143. þingi (20.12.2013)