Samantekt um þingmál

Umferðarlög

284. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Leiðrétting innleiðingar EES-réttar. Lögleiðing ákvæða úr heildarfrumvarpi til nýrra umferðarlaga sem brýnt er að nái fram að ganga.

Helstu breytingar og nýjungar

Breytingar á skilgreiningum á nokkrum ökutækjum til samræmis við tilskipanir Evrópusambandsins. Þar er einkum átt við skilgreiningar á léttum bifhjólum og ákvæði um akstur þeirra. Lögð eru til ákvæði sem skylda atvinnubílstjóra til endurmenntunar. Samgöngustofu verður falið að veita undanþágur frá skráningu ökutækis sem ekki er ætlað til almennrar umferðar. Umferðareftirlitsmönnum verður heimilt að kanna ástand tiltekinna ökutækja á vegum og fjarlægja skráningarnúmer reynist þau vanbúin. Einnig eru lögð til ákvæði um að börn undir 150 sm á hæð skuli nota öryggisbúnað í bifreiðum.

Breytingar á lögum og tengd mál

  • Skylt mál: Umferðarlög, 179. mál (innanríkisráðherra) á 141. þingi (25.09.2012)

Kostnaður og tekjur

Ákvæði frumvarpsins, sem varða skráningu ökutækja, geta haft áhrif á tekjur ríkissjóðs en talið er að þau séu óveruleg.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust og vörðuðu þær flestar greinar frumvarpsins, til dæmis þær sem fjalla um létt bifhjól. Auknar kröfur til endurmenntunar atvinnubílstjóra voru taldar íþyngjandi og jafnvel varða við 75. gr. stjórnarskrárinnar. Margir lögðust gegn því að umferðareftirlitsmönnum yrði falið aukið eftirlit og töldu verkefni þeirra betur eiga heima hjá lögreglu.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndunum.

Danmörk
Bekendtgørelse af færdselsloven. LBK nr 1386 af 11/12/2013.

Noregur
Vegtrafikklov. LOV-1965-06-18-4.

Svíþjóð
Trafikskadelag (1975:1410).
Lag (1951:649) om straff för vissa trafikbrott.
Körkortslag (1998:488).

Finnland
Vägtrafiklag 3.4.1981/267.
Fordonslag 11.12.2002/1090.
Trafikförsäkringslag 26.6.1959/279.
Lag om fordonstrafikregistret 13.6.2003/541.
Lag om registrering av fordon 23.12.1998/1100.

Fjölmiðlaumfjöllun

Krafa um endurmenntun "þungt högg" [frétt]. Morgunblaðið 14.3.2014. 


Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.