Smáþörungaverksmiðja Algalífs Iceland ehf. á Reykjanesi
375. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að staðfesta fjárfestingarsamning við Algalíf Iceland ehf.Helstu breytingar og nýjungar
Tekjuskattshlutfall félagsins verður 18% í stað 20%, félagið verður undanþegið stimpilgjöldum, almenna tryggingagjaldið og fasteignaskattur verða 50% lægri en áskilið er. Þá eru ýmis önnur gjöld lægri og félagið er undanþegið nokkrum ákvæðum laga um einkahlutafélög og eignarrétt en þau varða búsetu og ríkisfang eigenda og stjórnenda félagsins.Breytingar á lögum og tengd mál
Samningurinn byggir á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, nr. 99/2010, sem féllu úr gildi í árslok 2013.Kostnaður og tekjur
Ef áætlanir fyrirtækisins ganga eftir gætu tekjur ríkissjóðs aukist um 100 milljónir króna á ári en yrðu nokkuð hærri ef þessa samnings nyti ekki við.Umsagnir (helstu atriði)
Nokkrar jákvæðar umsagnir bárust.Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.Aðrar upplýsingar
Ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Upplýsingar á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis.
Iðnaðarráðuneyti (2009). Ívilnanir til eflingar fjárfestingum í atvinnurekstri: Skýrsla starfshóps.