Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri
392. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að draga úr umstangi og skriffinnsku vegna erlendrar fjárfestingar.Helstu breytingar og nýjungar
Nefnd um beina erlenda fjárfestingu verði lögð niður og tilkynningarskylda um erlendar fjárfestingar taki eingöngu til þeirra tilvika þar sem sérstakar takmarkanir gilda um þær.Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991.- Skylt mál: Stefna um beina erlenda fjárfestingu, 385. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (08.12.2011)
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.Umsagnir (helstu atriði)
Fáar umsagnir með litlum athugasemdum.Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.Aðrar upplýsingar
Starfshópur skipaður af iðnaðarráðherra (2010). Tillögugerð um stefnu stjórnvalda varðandi erlenda fjárfestingu.
Fjárfestingarvaktin (2013). Fjárfestingarvaktin: Tillögur til ráðherra um úrbætur á samkeppnishæfni Íslands varðandi beina erlenda fjárfestingu og eflingu markaðs- og kynningarstarfs í því skyni.