Samantekt um þingmál
417. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.
Markmið
Að auka sjálfstæði þjóðkirkjunnar.
Helstu breytingar og nýjungar
Ýmis verkefni og ákvörðunarvald eru færð til kirkjuþings og ákvæði þess efnis að það sé æðsta vald þjóðkirkjunnar eru gerð skýrari. Stjórn fjármála þjóðkirkjunnar er færð til kirkjuþings. Lagt er til að kirkjuþing setji ákvæði í starfsreglur um kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar, lausn ágreiningsmála og agabrot.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um Kristnisjóð o.fl. nr.
35/1970.
Lög um kirkjumálasjóð nr.
138/1993.
Lög um sóknargjöld o.fl. nr.
91/1987.
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.
Umsagnir (helstu atriði)
Meðal þess sem gagnrýnt var í
umsögnum var að verkefni biskupafundar væru skorin niður og að stjórn fjármála þjóðkirkjunnar væri færð til kirkuþings.
Afgreiðsla
Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.
Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.