Samantekt um þingmál

Húsaleigubætur

525. mál á 143. löggjafarþingi.
Félags- og húsnæðismálaráðherra.

Markmið

Að tryggja að jafnræðis sé gætt varðandi rétt námsmanna sem stunda nám fjarri heimabyggð til húsaleigubóta. Einnig að tryggja rétt þeirra til húsaleigubóta sem hafa afnot af íbúðarhúsnæði sem selt hefur verið nauðungarsölu.

Helstu breytingar og nýjungar

Undanþága frá lögheimilisskilyrði námsmanna er útvíkkuð þannig að hún nái einnig til leigjenda sem stunda nám innan þess sveitarfélags sem þeir áttu lögheimili í þegar námið hófst þurfi þeir að búa annars staðar innan sveitarfélagsins.
Lagt er til að gerðarþolar sem njóta réttar til að halda notum af íbúðarhúsnæði, sem hann hafði til eigin nota við nauðungarsölu, hafi rétt til húsaleigubóta. Jafnframt er lagt til að undanþága um þinglýsingu húsaleigusamninga verði einnig látin ná til leigusamninga leigjenda sem eru í námi og leigja herbergi eða íbúð á heimavist eða námsgörðum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi teljandi áhrif á greiðslur ríkissjóðs til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta.

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.

Aðrar upplýsingar

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.


Síðast breytt 22.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.