Sala fasteigna og skipa
208. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að tryggja neytendavernd í fasteignaviðskiptum.Helstu breytingar og nýjungar
Einkaréttur fasteignasala til að hafa milligöngu um sölu atvinnufyrirtækja annarra en hlutafélaga verði afnuminn. Eftirlitsnefnd fasteignasala taki við kvörtunum ef talið er að fasteignasali hafi valdið tjóni. Lögð er til sú breyting á fyrirkomulagi prófa til löggildingar á störfum fasteignasala að háskólar sjái um námið.Breytingar á lögum og tengd mál
Fella á úr gildi lög nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.- Endurflutt: Sala fasteigna og skipa, 236. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 143. þingi (13.12.2013)
- Endurflutt: Sala fasteigna og skipa, 457. mál (atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra) á 141. þingi (28.11.2012)
- Endurflutt: Sala fasteigna og skipa, 701. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (30.03.2012)
- Skylt mál: Sala fasteigna og skipa, 376. mál (efnahags- og viðskiptanefnd) á 145. þingi (27.11.2015)