Samantekt um þingmál

Grunnskólar

426. mál á 144. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að skýra betur valdmörk ráðuneyta hvað varðar kæruleiðir vegna ákvarðana sem teknar eru í grunnskólum á vegum sveitarfélaga og lúta að réttindum eða skyldum nemenda. Fjallað er um skilyrði þess að sveitarfélag feli einkaaðila rekstur grunnskóla.

Helstu breytingar og nýjungar

Allar stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á vegum grunnskóla og sveitarfélaga á grundvelli grunnskólalaga verða kæranlegar til mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Í frumvarpinu er settur rammi um samninga til að bregðast við álitaefnum sem hafa skapast þegar samið hefur verið við einkaaðila um rekstur á allri grunnskólastarfsemi viðkomandi sveitarfélags. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um grunnskóla nr. 91/2008.
  • Skylt mál: Grunnskólar, 675. mál (mennta- og menningarmálaráðherra) á 145. þingi (04.04.2016)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar. Þó taldi BSRB að frumvarpið fæli í sér þá grundvallarbreytingu að verið væri að veita sveitarfélögum heimild til að útvista allan rekstur grunnskóla til einkaaðila og lýsti sig andvígt henni. 

Afgreiðsla

Afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.



Síðast breytt 03.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.