Samantekt um þingmál

Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni

671. mál á 144. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að stuðla að vandaðri framkvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni. 

Helstu breytingar og nýjungar

Staðgöngumæðrun verður eingöngu heimil í velgjörðarskyni. Barni er tryggður réttur til að þekkja uppruna sinn. Sérstök nefnd um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni verður sett á fót. Sett eru skilyrði sem staðgöngumóðir þarf að uppfylla. Kveðið er á um skilyrði fyrir væntanlega foreldra. Óheimilt verður að nota kynfrumur staðgöngumóður og skylt verður að nota kynfrumu frá að minnsta kosti öðru væntanlegra foreldra. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna nr. 55/1996.
Barnalög nr. 76/2003.
Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 4 milljónir kr. árið 2016 en um 3,5 milljónir kr. á ári til frambúðar eftir það. 

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.

Aðrar upplýsingar

Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun. Heilbrigðisráðuneytið, 5. febrúar 2010. 


Síðast breytt 03.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.