Visthönnun vöru sem notar orku
98. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að innleiða Evróputilskipun.Helstu breytingar og nýjungar
Helsta breyting felst í því að lögin munu ná til allra orkutengdra vara í stað þess að ná eingöngu til vara sem nota orku. Aðrar breytingar eru minni háttar og tengjast innleiðingu á nýrri Evróputilskipun auk þess sem valdheimildir Mannvirkjastofnunar vegna eftirlits og brota á lögunum verða tryggðar.Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, og innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB frá 21. október 2009.- Endurflutt: Visthönnun vöru sem notar orku, 187. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 143. þingi (20.11.2013)
- Skylt mál: Merkingar og upplýsingaskylda varðandi orkunotkun heimilistækja, 99. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 144. þingi (15.09.2014)
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.Umsagnir (helstu atriði)
Umsögn barst frá Neytendastofu sem mótmælti flutningi verkefna til Mannvirkjastofnunar.Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.Aðrar upplýsingar
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB, um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur.