Samantekt um þingmál
133. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.
Markmið
Að móta heildstæða stefnumarkandi áætlun vegna uppbyggingar innviða fyrir ferðamenn.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að ráðherra umhverfis- og auðlindamála skipi verkefnisstjórn sem móti áætlun um uppbyggingu innviða til tólf ára ásamt þriggja ára áætlun þar sem verkefnum er forgangsraðað og framkvæmd þeirra útfærð nánar í samræmi við tólf ára áætlunina.
Breytingar á lögum og tengd mál
Kostnaður og tekjur
Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs aukist um 16,5 milljónir króna árið 2016 vegna ráðningar starfsmanns og umhverfismats. Kostnaður við framkvæmdir er ekki skilgreindur enda ræðst hann af fjárveitingum hverju sinni.
Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.
Aðrar upplýsingar
Ferðamálastofa.
Síðast breytt 01.04.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.