Samantekt um þingmál

Brottnám líffæra

170. mál á 145. löggjafarþingi.
Silja Dögg Gunnarsdóttir.

Markmið

Að auðvelda líffæragjafir látinna einstaklinga.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir ætluðu samþykki við líffæragjöf, þ.e. að hinn látni hefði verið samþykkur brottnámi líffæris eða lífræns efnis að sér látnum nema tilefni sé til að ætla annað. 
Óheimilt verði að nema brott líffæri eða lífræn efni úr líkama látins einstaklings til nota við læknismeðferð annars einstaklings leggist nánasti vandamaður hins látna gegn því. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um brottnám líffæra nr.  16/1991.

Kostnaður og tekjur

Kostn­aður við aðgerðir til að fjölga líffæragjöfum frá látnum einstaklingum á Íslandi er áætlaður 25–30 milljónir kr.

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.

Aðrar upplýsingar

Runólfur Pálsson (2005).  Líffæragjafir á Íslandi : betur má ef duga skalLæknablaðið 91(5) s. 404-405.
Sigurbergur Kárason o.fl. (2005). Líffæragjafir á Íslandi 1992–2002Læknablaðið 91(5) s. 417-422.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af sundhedsloven  LBK nr 1202 af 14/11/2014.
12. kafli einkum gr. 53.

Noregur
Lov om transplantasjon, sykehusobduksjon og avgivelse av lik m.m. [transplantasjonsloven].  LOV-1973-02-09-6.
Greinar  1 og  2.

Svíþjóð
Lag ( 1995:831) om transplantation m.m.
Sjá einkum greinar 3 og 4.

Finnland
Lag om användning av mänskliga organ, vävnader och celler för medicinska ändamål  2.2.2001/101.
Sjá einkum  4. kafla, 9. gr.

Fjölmiðlaumfjöllun

Aðstandendur geta enn hafnað líffæragjöf þrátt fyrir að fyrir liggi samþykki hins látna. Visir.is 1.7.2015.


Síðast breytt 17.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.