Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni
229. mál á 145. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.
Markmið
Að stuðla að vandaðri framkvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni.Helstu breytingar og nýjungar
Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni verður heimiluð. Sérstök nefnd mun veita leyfi til staðgöngumæðrunar. Sett eru skilyrði sem staðgöngumóðir þarf að uppfylla og kveðið á um skilyrði fyrir væntanlega foreldra. Óheimilt verður að nota kynfrumur staðgöngumóður og skylt verður að nota kynfrumu frá að minnsta kosti öðru væntanlegra foreldra. Barni er tryggður réttur til að þekkja uppruna sinn.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna nr. 55/1996.- Endurflutt: Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni, 671. mál (heilbrigðisráðherra) á 144. þingi (27.03.2015)
- Skylt mál: Staðgöngumæðrun, 4. mál (REÁ) á 140. þingi (03.10.2011)
Kostnaður og tekjur
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 4 milljónir króna árið 2017 en um 3,5 milljónir króna á ári eftir það.Umsagnir (helstu atriði)
Nokkrir umsagnaraðilar töldu að frumvarpið væri ekki tímabært. RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum, lagðist gegn samþykkt þess. Samtökin Staðganga og Tilvera mæltu með samþykkt frumvarpsins en gerðu jafnframt athugasemdir við einstaka greinar.Afgreiðsla
Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.
Aðrar upplýsingar
Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun. Heilbrigðisráðuneytið, 5. febrúar 2010.Bekendtgørelse af adoptionsloven LBK nr 1084 af 07/10/2014.
Grein 33: Formidling af surrogatmoderskab.
Bekendtgørelse af lov om assisteret reproduktion i forbindelse med behandling, diagnostik og forskning m.v. LBK nr 93 af 19/01/2015.
Sjá kafla 3 gr. 13.
Lov om humanmedisinsk bruk av bioteknologi m.m. (bioteknologiloven). LOV-2003-12-05-100.
Midlertidig lov om overføring av foreldreskap for barn i Norge født av surrogatmor i utlandet mv. LOV-2013-03-08-9 Lögin gilda til 31. desember 2015.
Lov om norsk statsborgerskap (statsborgerloven) LOV-2005-06-10-51.
Kafli 2, gr. 5a.
Lag ( 2006:351) om genetisk integritet m.m.
Sjá 6. kap. Insemination og 7. kap. Befruktning utanför kroppen.