Samantekt um þingmál

Siglingalög o.fl.

375. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Innleiðingar EES-reglugerða á sviði samgöngumála.

Helstu breytingar og nýjungar

Breytingin á siglingalögum snýr að því að tryggja farþegum á sjó og skipgengum vatnaleiðum sambærilega vernd og þekkist í öðrum flutningageirum, svo sem í flugi og á landi. 
Breytingin á umferðarlögum snýr að gerðarviðurkenningum dráttarvéla og bifhjóla.
Breytingin á lögum um rannsókn samgönguslysa snýr meðal annars að skilgreiningum, sjónarmiðum vegna rannsóknar, rannsóknarskyldu í vissum tilvikum samgönguslysa og samgönguatvika, lögsögu nefndar við rannsókn sjóslysa og sjóatvika og þátttöku erlendra ríkja.

Breytingar á lögum og tengd mál

Siglingalög nr. 34/1985.
Umferðarlög nr. 50/1987.
Lög um rannsókn samgönguslysa nr. 18/2013.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð (ESB) nr. 1177/2010 um réttindi farþega sem ferðast á sjó eða skipgengum vatnaleiðum.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr.  167/2013 frá 5. febrúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með ökutækjum fyrir landbúnað eða skógrækt.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.


Síðast breytt 04.03.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið [email protected].