Samantekt um þingmál
473. mál á 145. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.
Markmið
Að veita Lyfjastofnun heimild til gjaldtöku vegna þjónustu sem stofnuninni ber að veita samkvæmt lögum. Ein grein (5. gr.) frumvarpsins felur í sér innleiðingu á ákvæðum EES-gerðar.
Helstu breytingar og nýjungar
Lyfjastofnun fær heimild til gjaldtöku vegna lögbundinnar þjónustu sem felst meðal annars í framkvæmd gæðaúttekta og vottun á framleiðsluferlum fyrirtækja og afgreiðslu leyfisumsókna.
Skilgreiningu á hugtakinu lækningatæki er breytt til samræmis við skilgreiningu í tilskipunum Evrópusambandsins.
Lagt er til að heimildir Lyfjastofnunar til töku gjalds vegna eftirlits með lækningatækjum verði auknar.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lyfjalög nr.
93/1994.
- Skylt mál: Lækningatæki, 67. mál (velferðarráðherra) á 141. þingi (13.09.2012)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.
Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt óbreytt.
Aðrar upplýsingar
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins
2007/47/EB frá 5. september 2007 um breytingu á tilskipun ráðsins 90/385/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna um virk, ígræðanleg lækningatæki, tilskipun ráðsins 93/42/EBE um lækningatæki og tilskipun 98/8/EB um markaðssetningu sæfiefna.
Síðast breytt 02.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.