Meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur
670. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.
Markmið
Að innleiða EES-reglugerðir um meðhöndlun úrgangs.Helstu breytingar og nýjungar
Lagðar eru til skýrari reglur um rafeindabúnaðarúrgang, niðurrif skipa og meðhöndlun úrgangs vegna þess. Einnig eru lagðar til reglur um upplýsingagjöf og stjórnvaldssektir.Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur nr. 52/1989.- Skylt mál: ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 191/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn, 433. mál (utanríkisráðherra) á 145. þingi (16.12.2015)
- Skylt mál: ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 195/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn, 434. mál (utanríkisráðherra) á 145. þingi (16.12.2015)
- Skylt mál: ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 230/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn, 684. mál (utanríkisráðherra) á 145. þingi (04.04.2016)
- Skylt mál: Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl., 542. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 149. þingi (06.02.2019)