Samantekt um þingmál

Umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

679. mál á 145. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að styrkja lagalega umgjörð um öflun sjávargróðurs.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt verður veiðigjald á landaðan afla þangs og þara og öflun þess verður felld undir eftirlit samkvæmt fiskveiðistjórnarlöggjöfinni. Þá verður Hafrannsóknastofnun falið að stunda rannsóknir á sjávargróðri og vera stjórnvöldum til ráðgjafar um nýtingu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar nr. 57/1996, lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 og  lögum um veiðigjald nr. 74/2012.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir 9,3 milljóna kr. útgjaldaauka næstu þrjú ár en eftir það verði áhrifin jákvæð.

Aðrar upplýsingar

Lög um vernd Breiðafjarðar nr.  54/1995.
Greinargerð Karls Gunnarssonar hjá Hafrannsóknastofnun, um þang og þara og nýtingu þeirra. Fylgiskjal með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald. Þingskjal 1197, 679. mál.
Þörungaverksmiðjan Reykhólum.


Síðast breytt 12.04.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.