Samantekt um þingmál
779. mál á 145. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að setja ný heildarlög um félagasamtök sem starfa að almannaheillum.
Helstu breytingar og nýjungar
Um er að ræða ný lög um almannaheillasamtök til þess að treysta starfsemi þeirra og tryggja að aðilum að samtökunum séu ljósar allar helstu reglur sem um starfsemina gilda.
Breytingar á lögum og tengd mál
Gera þarf lítilsháttar orðalagsbreytingu á lögum um fyrirtækjaskrá nr.
17/2003 (3. gr.).
Kostnaður og tekjur
Bæði tekjur og gjöld ríkissjóðs munu aukast lítillega en nettóáhrifin verða minniháttar.
Umsagnir (helstu atriði)
Aðrar upplýsingar
Mat á mikilvægi heildarlöggjafar um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignastofnana. Félags- og tryggingamálaráðuneytið, 2010.
Fjölmiðlaumfjöllun
Síðast breytt 12.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.