Samantekt um þingmál

Samkeppnislög

888. mál á 145. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að endurskoða samkeppnislög í samræmi við ábendingar og evrópskt regluverk.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að í stað þess að Samkeppniseftirlitið veiti sérstaka undanþágu fyrir samstarfi fyrirtækja sé fyrirtækjum falið að meta það sjálf hvort skilyrði undanþágu eru uppfyllt. Þá er lagt til að heimild Samkeppniseftirlitsins til að skjóta úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla verði felld niður og auk þess er gerð breyting er snertir sáttameðferð í samkeppnismálum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á samkeppnislögum nr. 44/2005.

Kostnaður og tekjur

Hefur óveruleg áhrif á ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar

Samkeppniseftirlitið.


Síðast breytt 03.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.