Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
411. mál á 146. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Markmið
Að takmarka fjármögnun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða við framkvæmdir við ferðamannastaði í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila þannig að sjóðurinn fjármagni ekki lengur framkvæmdir við ferðamannastaði í eigu eða umsjón ríkisins.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að framkvæmdir ríkisaðila á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón ríkisins falli almennt utan gildissviðs laganna. Í staðinn yrði að fjármagna slíkar framkvæmdir ríkisaðila beint af fjárlögum. Þannig yrði hlutverk sjóðsins eftirleiðis að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða sem eru í umsjón eða eigu sveitarfélaga og einkaaðila. Í breytingunni felst einnig að heimildir sjóðsins til að styrkja framkvæmdir á vegum einkaaðila takmarkast ekki lengur við framkvæmdir sem varða öryggi ferðamanna og náttúruvernd. Einnig er lögð til breyting á skipan stjórnar Framkvæmdasjóðsins og að í lögunum verði ekki markaður tekjustofn sem ákveðið hlutfall af gistináttaskatti heldur muni í fjárlögum hvers árs ákveðið hvaða fjármunir renni í sjóðinn hverju sinni.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011.
- Skylt mál: Gistináttaskattur, 359. mál (fjármálaráðherra) á 139. þingi (09.12.2010)
- Skylt mál: Uppbygging innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, 133. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 145. þingi (17.09.2015)
- Skylt mál: Ferðamál, 621. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 145. þingi (16.03.2016)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð svo nokkru nemi.
Umsagnir (helstu atriði)
Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt með lítils háttar breytingum.
Aðrar upplýsingar
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða