Samantekt um þingmál

Húsnæðismál

469. mál á 148. löggjafarþingi.
Félags- og jafnréttismálaráðherra.

Markmið

Að finna hlutverki stjórnvalda við veitingu þjónustu í almannaþágu á húsnæðismarkaði traustan farveg til framtíðar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs, m.a. vegna þeirra verkefna sem honum eru falin við veitingu stofnframlaga á grundvelli laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016. Gert er ráð fyrir að skerpt verði á hlutverki Íbúðalánasjóðs, sveitarfélaga og Alþingis í stefnumótun og áætlanagerð í húsnæðismálum. Að auki eru lagðar til breytingar er varða úrræði vegna greiðsluvanda lánþega og afskriftir.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998.

Lög um almennar íbúðir, nr. 52/2016.
  • Endurflutt: Húsnæðismál, 849. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 145. þingi (30.08.2016)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið, verði það að lögum, hafi bein áhrif á afkomu ríkissjóðs umfram það sem þegar hefur verið ákveðið með framlögum af fjárlögum til stofnframlaga.

Afgreiðsla

Samþykkt með örfáum breytingum en þeirri helstri að heimildir Íbúðalánasjóðs til gagnaöflunar eru þrengdar þannig að þær takmarki ekki þagnarskyldu stjórnvalda og stofnana.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála. Velferðarráðuneytið, maí 2014.

Skýrsla starfshóps um framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs. Velferðarráðuneytið, apríl 2013.



Síðast breytt 11.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.