Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum
561. mál á 148. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Markmið
Að stemma stigu við skattundanskotum og skattsvikum.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að föstum starfsstöðvum félaga í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, sem staðsettar eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Lagt er til að kveðið sé skýrar á um skilaskyldu launagreiðanda á staðgreiðslu af launum í þeim tilvikum þegar um er að ræða útleigu á vinnuafli.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Tollalög, nr. 88/2005.
- Skylt mál: Skattlagning tekna erlendra lögaðila í lágskattaríkjum o.fl., 433. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 149. þingi (05.12.2018)
Kostnaður og tekjur
Ákvæði frumvarpsins um að heimild hlutafélaga til samsköttunar nái einnig til fastra starfsstöðva félaga innan Evrópska efnahagssvæðisins gæti hugsanlega haft einhver áhrif á ríkissjóð hvort heldur er til hækkunar eða lækkunar á tekjum. Gert er ráð fyrir 70-80 milljóna kr. einskiptiskostnaði vegna smíði sérstaks skráningarkerfis fyrir einfalda skráningu sem heimiluð verður erlendum aðilum sem selja rafræna þjónustu o.fl. hingað til lands.Afgreiðsla
Samþykkt með minni háttar breytingu.Aðrar upplýsingar
Milliverðlagning og faktúrufölsun. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2017.
Umfang skattundanskota og tillögur til aðgerða. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2017.
Skattskylda af erlendri ferðaþjónustustarfsemi á Ísland. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júlí 2017.