Samantekt um þingmál

Veiðigjald

144. mál á 149. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu. Að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er lagt til að settur verði nýr reiknistofn veiðigjalds sem verði byggður á afkomu við veiðar hvers nytjastofns. Gert er ráð fyrir að veiðigjald verði 33% af reiknistofni, að reglur um frítekjumark þess verði óbreyttar og að gjaldið verði ákveðið fyrir almanaksár. Einnig er lagt til að stjórnsýslu veiðigjalds verði breytt og dregið verði úr töf við meðferð upplýsinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um veiðigjald, nr. 74/2012.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi verði um 6–8 milljarðar kr. á ári næstu þrjú árin. Árlegur kostnaður vegna framkvæmdar laganna er áætlaður um 42,5 milljónir kr. Að auki fellur til um 46,1 milljóna kr. stofnkostnaður sem dreifist á árin 2018–2020 og gert er ráð fyrir að þeim kostnaði verði mætt innan útgjaldaramma málefnasviðs 5 í fjármálaáætlun (Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla).

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með nokkrum breytingum. Helstu breytingarnar voru þær að nytjastofnar sem hafa minna aflaverðmæti en 100 milljónir kr. á ári samkvæmt vegnu meðaltali næstliðinna þriggja ára mynda ekki stofn veiðigjalds, að sérstakt gjald skal lagt á gjaldskyldan aðila ef hann hefur vantalið tekjur eða oftalið kostnað og að frítekjumark nemur 40% af fyrstu 6 milljónum kr. álagningar hvers árs.

Aðrar upplýsingar

Álitsgerð með fylgiskjölum/Auðlindanefnd. Forsætisráðuneytið/Auðlindanefnd, september 2000.

Hagur veiða og vinnslu 2015. Hagtíðindi. Hagstofa Íslands, janúar 2017.




Síðast breytt 11.12.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.