Samantekt um þingmál

Meðferð einkamála og meðferð sakamála

496. mál á 149. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að kveða sérstaklega á um réttindi þeirra sem reiða sig á íslenskt táknmál til að njóta þjónustu táknmálstúlka í dómsmálum. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ríkissjóður greiði þóknun og annan kostnað vegna starfs táknmálstúlks í einkamálum í þeim tilvikum sem skýrslugjafi reiðir sig á íslenskt táknmál til samskipta. Einnig er lagt til að heimilt verði að flytja mál munnlega í æðri dómi (Landsrétti eða Hæstarétti Íslands) þó svo að stefndi taki ekki til varna í málinu en sú ótvíræða meginregla gildi aftur á móti að slíku máli verði að jafnaði lokið án þess.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991.
Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Kostnaður og tekjur

Áætlaður kostnaður fyrir ríkissjóð er talinn óverulegur.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu frá 6. desember 2007 í máli Súsönnu Rósar Westlund gegn Íslandi.


Síðast breytt 02.04.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.