Samantekt um þingmál

Lyfjalög

390. mál á 150. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi og með sem hagkvæmastri dreifingu lyfja á grundvelli eðlilegrar samkeppni og í samræmi við þær reglur sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu eða samkvæmt stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu. Að tryggja eftir föngum gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu, auka fræðslu um lyfjanotkun, sporna við óhóflegri notkun og halda lyfjakostnaði í lágmarki.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á regluverki lyfjamála, m.a. vegna breytinga sem orðið hafa á íslensku heilbrigðiskerfi síðan núgildandi lög tóku gildi sem og vegna aðildar Íslands að EES-samningnum. Lagt er til að 27 ESB-gerðir (tilskipanir og reglugerðir) verði innleiddar í íslenskan rétt. Gert er ráð fyrir að lyfjagreiðslunefnd verði lögð niður og verkefni hennar flutt til Lyfjastofnunar og Landspítala. Þá er gert ráð fyrir að ábyrgð lækna, tannlækna og dýralækna vegna undanþágulyfja verði skýrð. Lagt er til að heimildir lyfjabúða til að veita afslátt af greiðsluþátttökuverði verði skýrðar. Einnig eru lagðar til breytingar á umboði og verkefnum lyfjanefndar Landspítala, m.a. til að færa betur saman faglega og fjárhagslega ábyrgð vegna innleiðingar og notkunar nýrra lyfja í heilbrigðisþjónustunni. Þá er gert ráð fyrir að stofnuð verði lyfjanefnd hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sem vinni að öruggri og skynsamlegri notkun lyfja á öllum heilsugæslustöðvum og dvalar- og hjúkrunarheimilum. Lagt er til að gagnagrunnur á sviði lyfjamála verði færður til betri vegar og „stoðskrá lyfja“ skilgreind. Einnig er lagt til að heilbrigðisstarfsmenn verði skyldaðir til að tilkynna aukaverkanir lyfja. Gert er ráð fyrir að dýralæknar þurfi að sækja um sérstakt leyfi til að selja lyf sem ætlunin er að nota handa dýrum. Þá er lagt til að lyfjaauglýsingar verði almennt heimilar með undantekningum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lyfjalög, nr. 93/1994, og lyfsölulög, nr. 30/1963. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sóttvarnalögum, nr. 19/1997, og lögum um Umhverfisstofnun, nr. 90/2002.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði um 44 milljónir kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með allnokkrum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Lög á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om lægemidler   LBK nr 99 af 16/01/2018.

Finnland
Läkemedelslag   10.4.1987/395.

Noregur
Lov om legemidler m.v. (legemiddelloven)   LOV-1992-12-04-132.

Svíþjóð
Läkemedelslag  ( 2015:315).


Síðast breytt 01.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.