Samantekt um þingmál

Endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi

596. mál á 150. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB)  2015/1513  um breytingu á tilskipun 98/70/EB um gæði bensíns og dísileldsneytis og um breytingu á tilskipun 2009/28/EB um að auka notkun frá endurnýjanlegum orkugjöfum.

Helstu breytingar og nýjungar

Verði frumvarpið að lögum verður heimilt að telja endurnýjanlegt eldsneyti, sem unnið er úr lífrænum eða ólífrænum úrgangsefnum og ekki er unnt að nýta til manneldis eða sem dýrafóður, tvöfalt á við sama magn annars endurnýjanlegs eldsneytis í bókhaldi yfir orkugildi eldsneytis sem notað er í samgöngum hér á landi en krafa er gerð um að a.m.k. 5% þess sé endurnýjanlegt eldsneyti. Lagt er til að felld verði niður krafan um að fari hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í eldsneytisblöndu yfir 10% af rúmmáli skuli tilgreina það með skýrum hætti á sölustað. Lagt er til að frestur söluaðila til að gera Orkustofnun grein fyrir magni og hlutfalli endurnýjanlegs eldsneytis, sem þeir selja til samgangna á landi á hverju almanaksári, verði lengdur um einn mánuð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á Íslandi, nr. 40/2013.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingu á fyrirsögn frumvarpsins.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/1513 frá 9. september 2015 um breytingu á tilskipun 98/70/EB um gæði bensíns og dísileldsneytis og um breytingu á tilskipun 2009/28/EB um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.


Þingsályktun um aðgerðaáætlun um orkuskipti, nr. 18/146.


Síðast breytt 13.05.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.