Samantekt um þingmál

Innflutningur dýra

608. mál á 150. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að tryggja að Matvælastofnun hafi fullnægjandi úrræði til að framfylgja lögbundnum skyldum sínum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að gefinn verði kostur á því að dýr séu send úr landi ef þau eru m.a. flutt inn án heimildar í stað þess að þeim sé tafarlaust lógað eins og gildandi lög kveða á um. Einnig er lagt til að kveðið verði skýrar á um starfsemi sóttvarna- og einangrunarstöðva. Þá er lagt til að heimildir Matvælastofnunar verði skýrðar nánar í þeim tilfellum þegar upp kemur alvarlegur smitsjúkdómur, óeðlileg eða óútskýrð afföll eða rökstuddur grunur um smitsjúkdóm í sóttvarna- eða einangrunarstöð og skyldur rekstraraðila þeirra til að hlíta fyrirmælum stofnunarinnar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um innflutning dýra, nr. 54/1990.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 10.06.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.