Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum
665. mál á 150. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.
Markmið
Að lengja gildistíma 2. mgr. bráðabirgðaákvæðis 9 í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, til ársloka 2020. Bráðabirgðaákvæðið veitir heimild til að víkja frá vinnutímareglum laga nr. 46/1980 við gerð samninga við starfsmenn sem starfa við notendastýrða persónulega aðstoð.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að framlengd verði til ársloka 2020 heimild til að víkja tímabundið frá ákvæðum um vinnutímalengd í lögum nr. 46/1980 þegar gerðir eru samningar við starfsmenn sem starfa við notendastýrða persónulega aðstoð. Niðurstöður könnunar á framkvæmd þjónustu sem veitt er á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langavarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, sem gerð verður árið 2020, verða nýttar til að meta framkvæmdina og gera tillögur um framtíðartilhögun hennar.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.