Samantekt um þingmál

Sjúkratryggingar

701. mál á 150. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að einfalda stjórnskipan sjúkratryggingastofnunarinnar og skýra heimildir til eftirlits.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ráðherra skipi forstjóra sjúkratryggingastofnunarinnar án aðkomu stjórnar. Einnig er gert ráð fyrir að stofnunin fái heimildir til þess að hafa eftirlit með þjónustuveitendum sem standa utan samninga tímabundið jafnt og þeim sem eru með samninga. Þá er lagt til að stofnunin geti kallað eftir ákveðnum hlutum sjúkraskrár frá þjónustuveitendum vegna nauðsynlegs eftirlits.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á ríkissjóð. 

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 02.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.