Samantekt um þingmál

Kyrrsetning, lögbann o.fl.

710. mál á 150. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að styrkja tjáningarfrelsi og lýðræðislega umræðu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að í lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, komi ákvæði er skýri nánar málsmeðferð fyrir sýslumanni og einfaldi hana. Lagt er til að ávallt skuli lögð fram trygging til bráðabirgða þegar farið er fram á lögbann við birtingu efnis. Einnig er lagt til að frestir við meðferð sýslumanns verði takmarkaðir eins og unnt er og einungis veittir í undantekningartilfellum. Þá er lagt til að um staðfestingarmál í kjölfar lögbanns fari samkvæmt ákvæðum XIX. kafla laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, um flýtimeðferð einkamála, eftir því sem við á. Lagðar eru til strangari bótareglur í málum er varða lögbannsbeiðnir vegna birtingar efnis og dómara heimilað að dæma bætur að álitum vegna þess tjóns sem varð er birting efnis var hindruð vegna lögbanns eða beiðni um það.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.


Síðast breytt 07.09.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.