Samantekt um þingmál

Stjórnsýsla jafnréttismála

15. mál á 151. löggjafarþingi.
Forsætisráðherra.

Markmið

Að gera stjórnsýslu jafnréttismála skýrari og öflugri.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sett verði lög sem gilda um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála, þ.e. á því sviði sem frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018, taka til. Með jafnréttismálum í frumvarpinu er átt við mál sem varða jafna meðferð óháð kyni, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, aldri, fötlun, skertri starfsgetu, kynhneigð, kynvitund, kynein­kenn­­­um og kyntjáningu. Í frumvarpinu er meðal annars fjallað um störf Jafnréttisstofu og kærunefndar jafnréttismála.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, og lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir teljandi beinum áhrif á útgjöld ríkissjóðs umfram það sem leiðir af framkvæmd gildandi laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, laga um jafna meðferð á vinnumarkaði og laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Jafnréttisstofa.



Síðast breytt 18.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.