Samantekt um þingmál

Atvinnuleysistryggingar

300. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að draga úr tjóni vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og tryggja að neikvæð áhrif hans á atvinnulíf og efnahag heimilanna verði sem minnst.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimilt sé að greiða þeim sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins tekjutengdar atvinnuleysisbætur í allt að sex mánuði hafi þeir ekki þegar nýtt sér rétt sinn til tekjutengdra atvinnuleysisbóta á yfirstandandi bótatímabili fyrir 1. júní 2020.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði á bilinu 315–419 milljónir kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með þónokkrum breytingum. Framlengdur var réttur á 6% óskertum grunnatvinnuleysisbótum með hverju barni til og með 31. des. 2021; hlutabótaleiðin var framlengd til og með 31. maí 2021; og launamönnum hjá lögaðilum sem reka óhagnaðardrifna atvinnustarfsemi var gert mögulegt að sækja um hlutabætur.


Síðast breytt 17.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.