Kosningalög
339. mál á 151. löggjafarþingi.
Steingrímur J. Sigfússon.
Markmið
Að styrkja lýðræðið með því að viðhalda trausti á framkvæmd kosninga og tryggja að beinar, frjálsar og leynilegar kosningar séu haldnar reglulega.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að einn lagabálkur gildi um kosningar í stað fjögurra áður og þannig verði stefnt að einfaldari og nútímalegri löggjöf um framkvæmd kosninga. Lagt er til að landskjörstjórn verði að sjálfstæðri stjórnsýslunefnd og að henni verði falin almenn yfirstjórn kosningamála. Þá er lagt til að komið verði á fót úrskurðarnefnd kosningamála sem tekur til úrskurðar ýmsar kærur á þessu sviði, m.a. um lögmæti forsetakjörs, sveitarstjórnarkosninga og þjóðaratkvæðagreiðslna. Gert er ráð fyrir að miðlæg vinnsla kjörskrár muni fara fram hjá Þjóðskrá Íslands og að rafræn kjörskrá verði meginregla. Lagt er til að utankjörfundaratkvæðagreiðsla muni ekki geta hafist fyrr en öll framboð hafa komið fram og að póstkosning verði heimiluð þegar greidd eru atkvæði utan kjörfundar. Gert er ráð fyrir að kjósandi muni eingöngu geta greitt atkvæði einu sinni í hverjum kosningum, annaðhvort utan kjörfundar eða á kjörfundi. Að auki er gert ráð fyrir að öllum sem þess þurfa verði heimilað að fá aðstoð við kosningu hvort sem er vegna fötlunar, veikinda, elli eða af öðrum ástæðum. Þá er lagt til að kosningarréttur þeirra sem búsettir eru erlendis verði rýmkaður verulega í alþingiskosningum, forsetakjöri og þjóðaratkvæðagreiðslum.Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, lög um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, og lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögreglulögum, nr. 90/1996, lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.- Skylt mál: Starfsemi stjórnmálasamtaka, 871. mál (stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd) á 151. þingi (01.07.2021)
- Skylt mál: Kosningalög, 600. mál (ÞKG) á 152. þingi (01.04.2022)
- Skylt mál: Póstkosning á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VIII í kosningalögum, 506. mál (dómsmálaráðherra) á 153. þingi (29.11.2022)
- Skylt mál: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða nr. VII í kosningalögum, 507. mál (dómsmálaráðherra) á 153. þingi (29.11.2022)
- Skylt mál: Kosningalög, 6. mál (ÞKG) á 154. þingi (26.09.2023)