Samantekt um þingmál

Neytendastofa o.fl.

344. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að fækka ríkisstofnunum og auka skilvirkni og hagkvæmni eftirlits í þágu atvinnulífs og neytenda.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að stjórnsýsluverkefni á sviði vöruöryggismála, opinberrar markaðsgæslu og mælifræði verði færð frá Neytendastofu til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þá er lagt til að stjórnsýsluverkefni á sviði rafrænnar auðkenningar og traustþjónustu verði færð til Póst- og fjarskiptastofnunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um Neytendastofu, nr. 62/2005.
Lög um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019.
Lög um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995.
Vopnalög, nr. 16/1998.
Lög um vörur unnar úr eðalmálmum, nr. 77/2002.
Lög um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, nr. 91/2006.
Lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018.
Lög um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti, nr. 55/2019.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að fjárhagsáhrifin rúmist innan heildarútgjaldaramma ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum og fjármálaáætlun 2021–2025 þar sem fyrst og fremst er um að ræða tilflutning verkefna milli ríkisaðila.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingum sem voru að mestu tæknilegs eðlis.


Síðast breytt 18.03.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.