Samantekt um þingmál

Félagsleg aðstoð og almannatryggingar

361. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að bæta kjör örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að dregið verði úr áhrifum tekjutryggingar örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega úr 100% í 95% við útreikning sérstakrar framfærsluuppbótar. Þá er lagt til að örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fái 50.000 kr. skattfrjálsa eingreiðslu sem greiðist eigi síðar en 31. desember 2020.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.
Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs vegna lækkunar á tekjutryggingu við útreikning sérstakrar framfærsluuppbótar nemi 1.181 milljónum kr. á árinu 2021.

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna skattfrjálsu eingreiðslunnar geti numið allt að 1.068 milljónum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 10.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.