Samantekt um þingmál

Fullnusta refsinga

569. mál á 151. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að stytta boðunarlista til afplánunar refsinga og fækka þannig fyrningum refsinga og stytta bið dómþola eftir afplánun.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til tímabundnar breytingar sem heimila Fangelsismálastofnun að fullnusta allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi, í stað 12 mánaða, með samfélagsþjónustu. Einnig er gert ráð fyrir að Fangelsismálastofnun verði tímabundið heimilað að fullnusta dóma með samfélagsþjónustu þegar hluti fangelsisrefsingar er skilorðsbundinn þó heildarrefsing samkvæmt dóminum sé lengri en 24 mánuðir. Þá eru lagðar til tímabundnar breytingar sem myndu gera stofnuninni kleift að veita föngum reynslulausn nokkrum dögum fyrr en samkvæmt gildandi lögum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fullnustu refsinga, nr. 15/2016.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að fjölga þurfi tímabundið um eitt ársverk hjá Fangelsismálastofnun og er sá kostnaður metinn árlega á 11 milljónir kr. árin 2022, 2023 og 2024. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn rúmist innan útgjaldaramma málefnasviðsins.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tillögur starfshóps dómsmálaráðherra til aðgerða sem stytta eiga boðunarlista til afplánunar refsinga. Dómsmálaráðuneytið, júní 2020.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.