Samantekt um þingmál

Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar

605. mál á 151. löggjafarþingi.
Forsætisráðherra.

Markmið

Að gera Hagstofu Íslands kleift að uppfæra aðferðir við mælingu og útreikning vísitölu byggingarkostnaðar í samræmi við alþjóðlega þróun aðferðafræðinnar. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að mælingar á vísitölu byggingarkostnaðar falli undir lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, í stað þess að sérlög gildi um það efni. Með þessu móti yrði aðferðafræði vísitölu byggingarkostnaðar samræmd því sem gerist annars staðar í Evrópu þar sem hagskýrslugerð fellur undir almenn hagstofulög í stað sérlaga um hverja hagskýrslu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög. Lög um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987, falla úr gildi 1. janúar 2022. Við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingu á gildistökuákvæði frumvarpsins.


Síðast breytt 12.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.